MAMAS

BESTI HÚMORINN!!

22.08.2007 13:28:40 / mæsa

Ný sída

ég og Jóga erum komnar med sídu thar sem vid skrifum allt um DK ferdina okkar.

www.blog.central.is/aarhus07

Mary B Thor


» 0 hafa sagt sína skoðun

15.08.2007 16:17:54 / mæsa

Sarasota here

Hi kids, Im american now and I only speak english... nema stundum

Er her a Sarasota i 38 stiga hita, voda nice. Buin ad vera herna i ca 7 daga, thar adur var eg a Miami, stanslaust stud thar fram eftir nombi. Adur en eg skellti mer thangad ad tha var eg i Oralndo.

Er buin ad kaupa mer heilann helling.

Er illa bitinn af helvitis skordyrum, og thad ekkert litid.

Utum allt land eru stormvidvarir... nema her.

Er ad fara nuna ad labba eftir strondinni i goody gir.

Fer til Dk ad hitta Jogu, Binna og Helga eftir 4 daga.

Fer heim eftir 3 daga.

Mun blogga meira thegar eg kem til Dk.

Bid ad heilsa ykkur ollum.

Bye

Mary B Thor


» 3 hafa sagt sína skoðun

01.08.2007 10:37:37 / mæsa

Farin!!

Kæru vinir.
Hér með vil ég kveðja ykkur, ekki það að ég sé að deyja heldur er ég að fara í land tækifæranna, það er aldrei að vita hvað þetta forboðna land ber í skauti sér og aldrei að vita nema ég komi margfalt betri til baka, en svo er hættan á því að ég blandi mér í hættulegar götuklíkur sem leynast á strætum Ameríku.
 
Eftir dvöl mína í Ameríkunni er leiðinni haldið í gamla landið okkar Danmörk, það er aldrei að vita nema ég verði tekin inn í konungsfjölskylduna því ég og Fredrik krónuprins höfum verið í msn sambandi frá því í fyrra og höfum við haft vingott saman, en þá ekki á þann hátt eins og þið haldið, við erum bara vinir, hann á konu og stutt síðan hann eignaðist sitt fyrsta barn, og ég er með Óla, þannig að, ekki misskilja. 
 
Ég mun þó vera með pistla hér á síðunni þegar ég er komin til DK, kannski bara að við Jóga opnum aðra síðu, æj ég veit það ekki þá líður mér soldið eins og ég sé nýorðin ólétt og komin með barnalandssíðu með mynd af mér á djamminu. 
 
En allavega, þá bið ég ykkur vel að lifa.
 
Mary B Thor
 
 

» 2 hafa sagt sína skoðun

27.07.2007 12:58:40 / mæsa

5 dagar til stefnu

Öss það er allt að gerast núna. Aðeins hálfur dagur eftir í vinnunni, vinn bara til hádegis á mánudaginn. Maður er byrjaður að þvo allt draslið sem maður tekur með út, búin að fara í banka, búin að fá styrk, búin að fara til lækniss, ekki búin að fara í klippingu, búin að fara 2x í nálastungu út af mígreni, fer aftur á mánudaginn og ég er að segja ykkur það að þetta virkar.

5 dagar þangað til að ég fer af landi brott, 5 mánuðir þangað til þið sjáið mig aftur.

Þeir sem vilja kveðja mig, að þá er hittingur í kvöld á Q-bar, allir velkomnir sem vilja og hafa einhverj ástæðu til þess að kveðja mig í mína sem eru að fara, semsagt Jógu, Helga og Binna.

Veit ei hvort ég eigi eftir að blogga hér eitthvað aftur áður en ég fer út, en ég mun samt örugglega gera það allavega blogga ég úti í DK, veit að þessir 30 aðdáendur mínir vilja það, vilja vita hvernig mér gengur og hvað ég er að bralla. Svo verða settar inn myndir og sonna.

En nú ætla ég að undirbúa mig fyrir mikilvægan fund sem ég er að fara á, ekki morgunfund heldur miðjandagsfund klukkan 1400.

ps:

TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ Í GÆR ÍRIS SVERRISDÓTTIR, ÞAÐ ER EKKI Á HVERJUM DEGI SEM ALLIR GETA ORÐIÐ 22JA ÁRA.

Mary B Thor 


» 7 hafa sagt sína skoðun

19.07.2007 18:08:14 / mæsa

Tekið af b.c.is/wakeupcall

Já það sem ég og Andrea erum búnar að tala um að hittast á laugardaginn og halda smá kveðjuparty fyrir Maríu og Jógu.... Hverjar ætla að vera með í því???? endilega kommentið núna!!!!! (á semsagt www.blog.central.is/wakeupcall)

Kv. Heba


» 0 hafa sagt sína skoðun

18.07.2007 17:12:29 / mæsa

Hlaup

Hver er tilbúin/n í smá útihlaup núna með kellunni?? Ekkert langt sko bara stutt enda fer ég ekki langar vegalengdir nema ég bara æli.

Mary B Thor


» 0 hafa sagt sína skoðun

10.07.2007 11:05:23 / mæsa

Helgi, mök og fleira

Góðan daginn kæru hálsar, háslinn á mér er ekki góður, er með eitthvern vangefinn hálsríg eða rýg eða eitthvað.

Skelltum okkur í afmæli á laugardaginn til Helga Óttarrs, það var bara mjög fínt. Andrea fór reyndar fyrr heim því hún vissi ekkert hvað hún héti, Íris Sv. var á REEEEESSGETINU mjög fyndið því það gerist nú ekki ýkja oft. Ég var svo heppin í þessu afmæli að fá að ganga inn á fólk sem var að stunda kynmök, veit ekki hvort það hafi samt verið gaman því þetta var eiginlega bara nauðgun í gangi þarna því gaurinn var 81 módel og gellan 90 módel og hálf dauð, rather ógeðslegt. En greyið stelpan bað Söndru afsökunnar allt kvöldið fyrir að hafa verið að stunda kynmök í rúminu hans Helga. Einnig var ég heppinn með annað, t.d með það að það var hellt heilu glasi af bollu yfir fína kjólinn minn, Kidda æðislega var þarna og gat ég ekki hamið mig því hún er svo æðisleg, og ég hitti dana sem ég spjallaði við og lærði nýtt danskt orð... tysse sem þýðir víst pissa, frábært.

En annars er það að frétta af okkur:

  • Sandra búin að kaupa íbúð, TIL HAMINGJU!!!!! ótrúlegt, við erum að verða stórar.
  • Andrea byrjuð að leigja, TIL HAMINGJU!!!
  • Ég á leiðinni til Flórída eftir akkurat 3 vikur.
  • Svo ég á leiðinni til Danmerkur eftir 39 daga.
  • Andrea á leiðinni til Osló í vikunni, held ég barasta á fimmtudaginn.

Veit ei hvað er meira í fréttum þannig að ég kveð í bili, veit ekki hvað þetta bil verður langur tími.

Mary B Thor


» 7 hafa sagt sína skoðun

30.06.2007 19:33:12 / mæsa

Kannski nýtt blogg

sko það er ekkert að gerast hér á þessari síðu, ég ein held henni uppi.

Pæling að búa bara til nýja bloggsíðu, málið er það að þetta er orðinn svo mikill vani hjá manni að blogga en svo þarf maður nottla að hafa blogg þegar maður fer út svo fólk getur fylgst grand með.

Spurning um að færa sig yfir á blog.is og gerast meðlimur í bloggsamfélagi fræga fólksins þar að segja Sigmars, Ellýjar og Eyþórs.

Miklar vangaveltur hér á ferð, miklar.

Mary B Thor


» 5 hafa sagt sína skoðun

24.06.2007 19:56:24 / mæsa

Miami

Langar bara að deila með ykkur lúxusheitunum sem ég verð í á Miami í ágúst.

Þetta er hótelið sem ég verð á.

Hér tjillar maður í lobbýinu.

Svo er alltaf hægt að taka í eina skák.

Svo eftir amstur dagsins er gott að fara inn að sofa.

Hægt að sjá fleiri myndir á þessari síðu:

http://www.catalinahotel.com/reservations.htm

Mary B Thor


» 0 hafa sagt sína skoðun

24.06.2007 00:26:38 / mæsa

LRDAG

Hæ krakkar hér erum við, ég Dre OG jÓGA heima hjá Jógu búnar að vera að sötra síðan 6.... já 6 og erum ekki búnar að gera neitt nema að fara út á select, ég í kjól, andrea í joggara og jóga í hjólabuxum... very nice.

Reyndar forum við drea til hveró í sund í fokkin 20 stiga hita og fengum far and everything svo skelltum við okkur á selfoss á kentarann... sjúkur dagur.

svo er það bærinn í kvöld... það er enginn að missa af neinu nema barra af kojufileríi.

ok j´ga binni og helgi einn og hálfur í dk....NICCCCCCCCCCCCCCCCCCCCCCCE

MARY B THOR


» 0 hafa sagt sína skoðun

18.06.2007 21:40:47 / mæsa

lífið okkar

Nei hæ, þú hér og bara alltaf á refresh takkanum, easy on it!!!

Jæja lítið gerst fyrir utan það að Andrea átti afmæli seinasta fimmtudag eða þann 14. júní og varð hún 22 ára.

TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ ROTTA

Svo varð hún Íris Halla 23 ára á laugardaginn.

TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ LUKKUTRÖLL

Sandra skellti sér til DK fyrir stuttu síðan með unnustumanni sínum.

Ég skellti mér til Akureyrar í hjólhýsi.... já hjólhýsi, frekar fyndið.

Soffía farin til Spánar og hitti ég hana ekki fyrr en í desember ekki nema hún komi út í heimsókn sem hún á örugglega eftir að gera.

Erika og Heba farnar að vinna upp á flugvelli við að innrita, endilega fara til þeirra með farangur í yfirvigt ;)

Andrea á leiðinnni til Osló.

Ég og Íris eigum Bækistöðina og málningahópana.

OG JÓHANNA!!!!!!!..... 1 OG HÁLFUR MÁNUÐUR Í DK... ERTU AÐ TRÚA ÞESSU???????

ég kveð

MARY B THOR

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

29.05.2007 00:08:29 / mæsa

Stött en laggggott

Ok stutt og laggott

  •  Mary veik á fimmtudag og föstudag, bömms
  • ERIKA AFMÆLI Á LAUGARDAGINN TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ LILLE
  • Sandy fór út til DK á föstudaginn ásamt löggukvikindinu
  • Soffía og Heba útskrifuðust úr Fb á miðvikudaginn Til hamingju með það
  • veisla hjá Sófý á miðvikudaginn... dýrindis kræsingar, kjúlli á spjóti, mátti fara með hann heim en fannst það ekki við hæfi
  • Komumst að merkilegum hlut... mjög svo, mjög svo góðum hlut, kannski ekki beint hlut en þetta voru góðar fréttir
  • Veisla hjá Hebu á laugardaginn, heavy góð humarsúpa í glasi þar á ferð
  • Partý seinna um kvöldið í Hafnafirðinum, þar var blandaður dýrindis mohito að hætti Agötu, svo razz í sprite, nammi namm
  • Jet black Joe ennþá seinna um kvöldið
  • SVEITAFERÐ HJÁ MARY Á ÞRIÐJUDAGINN, ÍÍÍÍHAAAAA
  • Vörutorg sýgur feitann... algengustu setningarnar í þeim þætti eru: Hver kannast ekki við..., nú er það úr sögunni..., nú á markaðinn er kominn..., Láttu þetta ekki framhjá þér fara..., og síðanst en ekki síst er það setningin, hringdu núna.
  • 2 mánuðir í Flórída og DK hjá Mary.

Hef það ei lengra í bili.

Mary B Thor

 


» 6 hafa sagt sína skoðun

18.05.2007 22:09:49 / mæsa

Betra seint en aldrei

Kannski of seint að ræða um þetta en afhverju komust við ei í júró... Eiki var feikiflottur all cowered in letha og með faxið flaxandi, gat ekki verið flottari á sviðinu.

Jú ástæðan var sú að við Íslendingar erum ekki Tsernóbýl-börn, Tsernóbýl-börnin standa saman í gegnum súrt og sætt, þar á meðal súrt regn, þrátt fyrir að þau hati meira að segja hvort annað, allt fyrir landið hliðina á mér, ef landið hliðina á mér gefur mér stig í júró þá fá þeir 4 kaffibaunir eða 3 börn, 3 börn í þessum löndum eru jafn dýr og suðusúkkulaði.

En ég ákvað að halda með öðru landi víst að við komumst ekki áfram, og auðvitað hélt ég með laginu sem vann á endanum, Serbían flower man, of gott lag þar á ferð, gæsahúð og læti þrátt fyrir það að hún liti út eins og hann Hiro litli í þáttunum Heroes.

    

En það var meira en júró þetta kvöldið, já Pétur og Jón, það voru kosningar og ég fékk í fyrsta skipti að kjósa í alþingiskosningum. Nokkrir aðilar voru svo heppnir að fá að koma í partý til mín þetta kvöldið en fórum við svo fljótlega í annað partý hjá gömlum manni og var farið í bæinn mjög snemma eða um 4 leitið, það var bara enginn í bænum þetta kvöldið, bara enginn, þannig að ég flaug inn á Rex eða inn á Hofið eins og ég kýs að kalla það en fljótlega var farið heim vegna þess að það var bara enginn í bænum. Pantaði bara pítsu, ákvað að fá mér vonda pítsu, með kjúlla, hvítlauk, sveppum og miiikið af aukaosti mmm... hún var svo vond.

En næst á dagskrá er það afmælið hennar Eriku og útskriftaveislurnar þeirra Hebu og Sófý, sé ykkur seinaaaaaa.

Mary B Thor


» 2 hafa sagt sína skoðun

06.05.2007 19:27:20 / mæsa

Sjötugir menn geta líka verið glæponar

 Ég hef ákveðið að gera stutta sögu langa:

Fór í kringluna í gær með bróður mínum, sem er kannski ekki frásögu færandi en aftur á móti þegar við vorum að fara úr kringlunni og ætluðum okkur í Smáralindina þá byrjaði fúttið.

Við löbbuðum semsagt út á bílaplan, á meðan við gengum var ég að leita að bíllyklunum í veskinu mínu, aldrei ætlaði ég að finna þá og set því aðra löppina upp á brettið á bílnum að aftan til þess að leggja veskið á löppina á mér. (Þið hljótið að sjá þetta fyrir ykkur enda mjög vel lýst) Á meðan hallar bróðir  minn sér að bílnum.

Á meðan ég setti löppina á bílinn að aftan og bróðir minn hallaði sér að bílnum kom gamall maður á tiltögulega nýlegum Bens jeppa og ætlar sér að leggja hliðina á bílnum mínum, stæðið var svolítið þröngt en lét sá gamli það ekki aftra sér. En hann hefði betur sleppt því að leggja þarna því sá gamli keyrir á bílinn minn. Ég og bróðir minn litum á hvort annað því við bæði fundum fyrir því og sáum hann keyra á kaggann okkar.

,,Ertu ekki að grínast?" spyr ég bróðir minn, ,,Hann keyrði á bílinn"

,,Ég fann fyrir því" Sagði bróðir minn, enda fór það ekki framhjá neinum því bíllinn lyftist dágóða hæð frá jörðu.

Gamli maðurinn gekk út úr bílnum og ég labbaði til hans og segi sísvona: ,,Fyrirgefðu, ég held þú hafir keyrt á bílinn minn,,

,,Ha, nei það gerði ég ekki, ég fann ekki fyrir neinu,, segir sá gamli. Ekki skrítið að hann hafi ekki fundið fyrir því enda mjög gamall en samt gekk hann beint að staðnum á bílnum mínum þar sem hann keyrði á. (vissi það pottþétt, bara að nota aldurinn til þess að gabba).

,,Þetta er bara skítur, það er hægt að þrífa þetta af" segir sá gráhærði.

,,Nei!!" segir bróðir minn ákveðinn ,, það er stór rispa hérna á bílnum."

Síðan geng ég að bílnum hans og sé rispu á bílnum sem er í sömu hæð og rispan á mínum bíl.

,,Það er rispa á bílnum þínu" segi ég við hann.

,,Já ég veit það, það er bara gömul rispa, það er líka hinu megin" segir gamli, sem gaf það greinilega í skyn að hann væri alltaf að keyra á. Því næst gengur hann í burtu.

Ég hringi þá beint í Óla og kemur hann stuttu á eftir og kíkir á bílinn, eftir smástund kemur sá gamli aftur ásamt konunni sinni sem hafði ekki verið með honum fyrst, hvort hann hafi bara pikkað upp einhverja kellingu í Kringlunni, veit ég ekki. En Óli fer og talar við hann og spyr hann hvort hann hafi keyrt á bíllinn, sá gamli neitar bara og segir að rispan á mínum bíl væri gömul.

,,Heyrðu, þau sáu þig keyra á bílinn og fundum fyrir því" segir Óli.

Þá kemur kellingin með einhvern derring.

,,Nei hann keyrði ekkert á, bíllinn var langt frá" segir hún, bansettur lygarinn.

,,Heyrðu vinan, þú varst ekki einu sinni hérna" sagði ég við hana, og voðalega móðgaðist sú gamla.

,,Eigum við ekki bara að gera skýrslu?" Segir Óli ,,Allavega að taka niður númerið"

Eitthvað muldrar kallinn en keyrir síðan í burtu. Þá var okkur nú nóg boðið og hringdum við á lögguna og kom hún eftir 30 mínútur, HELVÍTI lengi, en við fengum nú ekki neina venjulega löggu heldur fengum við sérsveitina. Þeir voru búnir öllum hágæða vopnum og lág við að þeir væru í skotheldum vestum.

Að lokum var hlegið að þessu því það er ekki á hverjum degi sem sérsveitin kemur að bjarga manni því maður um sjötugt hafi keyrt á mann. En þeir fóru síðan næst og handtóku manninn sem var með mikinn mótþróa... nei kannski ekki alveg.

En mér fannst þetta allt saman rosalega erfitt því ég vorkenni alltaf svo gömlu fólki og meira gömlum mönnum, þannig að ég gat ekki verið leiðinleg og rifið kjaft.

En allavega eins og ég sagði áðan að þá ætlaði ég að gera stutta sögu langa og tókst mér það ætlunarverk, en ekki veit ég hversu margir lásu þessa sögu, það er allt annar hængur.

Mary B Thor


» 4 hafa sagt sína skoðun

04.05.2007 20:18:14 / mæsa

Mary B Thor

Það er svo langt síðan ég hef farið í tölvu sem gerði það að verkum að ég vissi ekki hvar stafirnir væru á takkaborðinu, ótrúlegt alveg.

En það sýnir hér og sannar að ég er eini bloggarinn á þessari síðu, en ég er ánægð hvað margir fylgjast með henni, það er líka alveg órtúlegt líkt og hitt fyrir ofan.

Ég fór að pæla áðan, það er eitthvað sem ég geri reglulega, maður þarf ekki metnað, maður þarf bara fólk til þess að koma manni áfram, og hvernig gerir fólk það?... jú með hrósi, maður lifir á hrósum. Dæmi: Gunnfríður er 41 árs gömul útivinnandi kona sem hefur lengi vel baslað við aukakílóin, seinustu ár hefur hún ætlað sér að að fara í ræktina og fá sér einkaþjálfara því kílóin voru farin að hrannast upp á nó tæm. Loksins ákvað Gunnfríður að gera eitthvað í sínum málum og keypti sér kort í ræktina og fór annan hvern dag eftir vinnu. Mánuður leið og Gunnfríði fannst hún ekkert hafa lagt af og fannst henni hún vera í vítahring aukakílóanna og fannst enginn ástæða fyrir því að fara í ræktina. Gunnfríður var nú ekki búin að mæta í heila viku. Dag einn hitti hún vinkonu sem hún var ekki búin að hitta í einn mánuð, þessi vinkona tók strax eftir því að Gunnfríður hefði lagt af og spurði hvort hún væri í ræktinni því hún liti svi vel út. Eftir þetta samtal var Gunnfríður hæðst ánægð og fór beinustu leið í rætina og hélt því áfram næstu mánuði þangað til hún var komin í kjörþyngd og farin að pikka upp karla á djemminu.

Talandi um djamm... orð sem ég þoli ei... að þá fór ég á þetta djamm seinasta mánudag, daginn sem Sandra varð 22 ára, en fór ég ekki með Söndru heldur fór ég ein, hitti reyndar Jógu, Rebbu og félaga og var svaka stuð, svo fóru allir að tíast heim og á endanum var ég ein en náði ég nottla að vella mér upp á hann Brynjar félaga minn, greyið sat uppi með mig og hann að reyna að höstla.

TIL HAMINGJU SANDRA MEÐ AFMÆLIÐ Á MÁNUDAGINN, 22 ÁR... ÞAÐ ER HELVÍTI MIKIÐ.

En að allt öðrum hand legg að þá eru 2 og hálfur mánuður í það að ég fari út. Fyrst til Us and A þar sem ég mun vera í Orlando, Miami og á Sarasota, svo kem ég heim í einn dag og er síðan flogin út til DK.... helvíti hlakkar manni til en kvíðinn er þarna til staðar líka þar sem ég er ekki búin að safna miklum monningum aðeina 200.000 kr fyrir báðar ferðirnar þess vegna ætla ég hér og nú að biðja ykkur um að styrkja mig, hér á ferðinni er gott málefni sem vert er að styrkja og allir þeir sem styrkja fá verlega gjöf en er ég ei búin að ákveða gjöfina en verður gjöfin frá útlöndum.

Endilega hafa bara samband þeir sem vilja styrkja, ég veit vel að Hannes Smára les þessa síðu og þar sem hann notar rollon þá veit ég vel að hann á eftir að styrkja ferð mína, einnig þú Kári minn, þú ert næu einu sinni einn af áhrifamestu mönnum heimsins samkvæmt tímaritinu Time.

Hef það ekki lengra í bili börnin góð.

Mary B Thor


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 26
MAR�?�?�?�??�?�?�â�?��?��?�?â�?� �?¢â�??¬â�??¢�?�?
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1628 dögum